Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna 2026

Frá vinstri tli hægri: Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna, Helga Þorleifsdóttir, félag…
Frá vinstri tli hægri: Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna, Helga Þorleifsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastýra nemendaþjónustu hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum og Stefán Magnússon, varaformaður ÖBÍ

Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna í ár fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD. Verðlaunin voru afhent á málþinginu Þegar ADHD fylgir þér sem haldið var í Veislusmáranum.

Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson og Stefán Magnússon, varaformaður ÖBÍ afhentu Helgu Þorleifsdóttur, félagsráðgjafa og verkefnastýru nemendaþjónustu hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum - viðurkenningarskjal og glæsilegt málverk eftir Dagmar Róbertsdóttur, sem er betur þekkt undir listamannanafninu Dalla.

Í ávarpi sínu við verðlaunaafhendinguna fór Vilhjálmur yfir rökstuðning stjórnar fyrir valinu og sagði m.a. eftirfarandi:

Hvatningarverðlaunum ADHD samtakanna er ætlað að varpa ljósi á það góða starf sem unnið er víða um land í þágu fólks með ADHD. Verðlaunin hafa verið veitt einstaklingum, fagfólki, hópum, fyrirtækjum og stofnunum sem hafa sýnt frumkvæði, metnað og framúrskarandi framlag á þessu sviði.

Fyrsti handhafi verðlaunanna var Urður Njarðvík árið 2021 fyrir rannsóknir sínar á ADHD og skyldum röskunum. Í kjölfarið voru Skógarmenn KFUM og KFUK heiðraðir fyrir verkefnin „Stelpur í stuði“ og „Gauraflokkinn“, sumarbúðir í Vatnaskógi fyrir stelpur og stráka með ADHD. Þá hlaut starf Sjónarhóls viðurkenningu fyrir ómetanlegan stuðning við forráðamenn barna sem ekki fá þá þjónustu sem þau þurfa á að halda. Hljóðbókasafn Íslands var sömuleiðis heiðrað fyrir mikilvæga þjónustu við börn og fullorðna með ADHD sem eiga erfitt með að nýta sér prentað mál. Á síðasta ári hlaut Sara Rós Kristinsdóttir hvatningarverðlaun samtakanna fyrir ómetanlegt framlag sitt til fræðslu og valdeflingar fólks með ADHD og aðstandenda þeirra.

Að þessu sinni ákváðum við að beina athygli okkar að skólasamfélaginu, allt frá leikskóla- til framhaldsskólastigs. Það er staðreynd að í almennu fimm ára kennaranámi er enn aðeins í boði einn valáfangi sem fjallar meðal annars um raskanir á borð við ADHD og einhverfu. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar hafa litlar breytingar orðið á þessu sviði, hvort heldur í Kennaraháskóla Íslands á sínum tíma eða síðar innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Vegna þessa hafa ADHD samtökin lagt aukna áherslu á fræðslu fyrir kennara, skólastjórnendur og sveitarfélög. Sú vinna hefur skilað árangri, og víða um land má finna skóla og sveitarfélög sem hafa tekið stór skref í átt að betri stuðningi. Þar má meðal annars nefna Borgarhólsskóla á Húsavík ásamt Hamarsskóla.

Í ár kusum við þó að horfa til framhaldsskóla sem hefur sýnt frumkvæði og metnað með þeim hætti að aðrir skólar gætu sótt þangað innblástur.

Það er mér því sönn ánægja að tilkynna að handhafi Hvatningarverðlauna ADHD samtakanna árið 2026 er Menntaskólinn á Egilsstöðum.

Menntaskólinn á Egilsstöðum hefur um árabil verið í fararbroddi í stuðningi við framhaldsskólanemendur með ADHD, sem og aðrar taugaþroskaraskanir, þar á meðal einhverfu. Skólinn hóf snemma að þróa markvissar leiðir til að mæta þörfum þessa nemendahóps og hefur sýnt bæði frumkvæði og metnað við að skapa námsumhverfi þar sem ólíkar þarfir eru viðurkenndar og þeim mætt af skilningi, sveigjanleika og fagmennsku.

Það sem einkennir starf skólans er sú áhersla sem lögð er á að grípa nemendur strax við upphaf skólagöngu. Innan nemendaþjónustunnar er sérstaklega hugað að þörfum nemenda með ADHD. Nemendur eru boðaðir til viðtals þar sem farið er yfir þarfir þeirra, möguleg úrræði og þann stuðning sem getur nýst þeim í námi. Eftirfylgni er markviss og stuðningurinn sniðinn að aðstæðum og þörfum hvers og eins.

Skólinn leggur jafnframt ríka áherslu á að nemendur öðlist betri skilning á eigin ADHD og áhrifum þess á nám og daglegt líf. Með fræðslu, námsráðgjöf og hagnýtum stuðningi fá þeir tækifæri til að efla færni sína í skipulagi, tímastjórnun og námstækni, þekkja eigin styrkleika og finna þær leiðir sem henta þeim best.

Sveigjanleiki í námi, fjölbreytt námsmat, verkefnatímar og einstaklingsmiðuð úrræði styðja enn frekar við þessa nálgun.

Menntaskólinn á Egilsstöðum hefur einnig lagt sitt af mörkum til að miðla þekkingu og reynslu til annarra. Skólinn hefur meðal annars þróað gagnabanka á heimasíðu sinni með fræðslu og hagnýtum verkfærum um ADHD og nám sem nýtast bæði nemendum, foreldrum og fagfólki.

Sérstaða starfsins felst þó fyrst og fremst í þeirri heildarsýn að stuðningur við nemendur með ADHD og aðrar raskanir snýst ekki eingöngu um að aðlaga námið að þörfum þeirra. Hann snýst einnig um að efla sjálfsþekkingu, sjálfstæði og trú á eigin getu.

Markmiðið er að nemendur fái ekki aðeins aðstoð við að takast á við áskoranir námsins heldur öðlist jafnframt þekkingu og verkfæri sem nýtast þeim áfram í námi, starfi og daglegu lífi.

Og eins og góður vinur minn segir stundum: Þetta er til háborinnar fyrirmyndar.

Með Hvatningarverðlaunum ADHD samtakanna 2026 viljum við varpa ljósi á þessa frammúrskarandi nálgun og þakka Menntaskólanum á Egilsstöðum fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD. Skólinn hefur með frumkvæði sínu og markvissum vinnubrögðum sýnt hvernig skilningur, snemmtækur stuðningur og einstaklingsmiðuð nálgun geta skapað raunveruleg tækifæri fyrir ungt fólk með ADHD til að nýta styrkleika sína og blómstra í námi og lífi.

Megi fordæmi Menntaskólans á Egilsstöðum verða öðrum skólum, menntayfirvöldum og stjórnvöldum leiðarljós til betri vegar.