Minnum á spjallfundinn í kvöld

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld - miðvikudaginn 2. nóvember kl. 20:30 fyrir foreldra og forráðamenn. Fundurinn verður að Háaleitisbraut 13.

Yfirskrift hans er "ADHD og lyf" og leiða þau Elín Hrefna Garðarsdóttir og Vilhjálmur Hjálmarsson fundinn.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.