Munið spjallfundinn í kvöld

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20:30 fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD.

Yfirskrift fundarins er "Hegðunarvandi og neysla" og leiðir Sólveig Ásgrímsdóttir fundinn.

Fundurinn verður að Háaleitisbraut 11-3, í fundarsal á 4.hæð.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.