Myndband um SRFF á einföldu og skýru máli

Á ráðstefnu ÖBÍ á dögunum var nýtt myndband um SRFF kynnt. Myndbandið fjallar um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og hvernig hann er leiðarvísir að því hvernig tryggja skal fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri til jafns við aðra í lífinu.

Myndbandið var frumsýnt á ráðstefnunni „Mannréttindi fyrir alla – framtíðarsýn Öryrkjabandalags Íslands“ í morgun 20. nóvember. Á ráðstefnunni er verið að kynna hvernig framtíðarsýn bandalagsins tengist samningnum.

Nánar um SRFF á vefsíðu ÖBÍ