Náin sambönd og ADHD - fræðslufundur á Facebook

Náin sambönd og ADHD - fræðslufundur á Facebook.
Náin sambönd og ADHD - fræðslufundur á Facebook.

Á meðan samkomutakmarkanir stjórnvalda eru í gildi, munu ADHD samtökin standa fyrir vikulegum opnum fræðslufundum um ýmis málefni tengd ADHD. Miðvikudaginn 6. maí næstkomandi kl. 19:30 verður fjallað um Náin sambönd og ADHD. Fræðslufundunum verður streymt beint á Facebook síður samtakanna - ADHD samtökin, ADHD Eyjar og ADHD Norðurland.

Næstu fræðslufundir sem þegar hafa verið ákveðnir eru þessir - sjá nánar á Facebook viðburði fræðslufundanna:

6. maí kl. 19:30 - Náin sambönd og ADHD. ADHD gefur nánum samböndum og foreldrahlutverkinu sérstakann blæ - miklar tilfinningar, áfergju og gleði en einnig áskoranir sem mikilvægt er að þekkja og kunna að bregðast við. Umsjón með fræðslufundinum hefur Elín H. Hinriksdóttir, formaður ADHD samtakanna, en hann er sérstaklega ætlaður fólki með ADHD, sambúðarfólki einstaklinga með ADHD og öllum þeim sem lifa og starfa með fólki með ADHD. Þeir sem vilja leggja spurningar fyrir Elínu, nafnlaust eða undir nafni, geta sent henni póst á elin@adhd.is

13. maí kl. 19:30 - Taktu stjórnina - ADHD markþjálfun.

Umsjón: Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og stjórnarkona í ADHD samtökunum.

Nánari upplýsingar um fræðslufundina og upptökur af fyrirlestrunum má finna á heimasíðu ADHD samtakanna - hér.

Fræðslufundirnir eru opnir öllum en þeir sem vilja ganga í ADHD samtökin og styrkja þannig starfsemina geta gert það hér:

https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Þá vekjum við athygli á vefverslun samtakanna, en þar er m.a. hægt að fá margskonar fikt-, leik- og þroskandi vörur og fjölda bóka sem nýst geta vel við nám og daglegt líf með ADHD. Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérkjara á ýmsum vöruflokkum. Vefverslun ADHD samtakanna.