Námskeið fyrir foreldra 6-12 ára barna með ADHD - Skráning hafin

Fræðslunámskeið fyrir foreldra 6-12 ára barna með ADHD verður haldið dagana 20. og 27. september 2014 í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13. Skráning er hafin hér á vefnum. Vakin er athygli á að ríflegur afsláttur er veittur skráðum félagsmönnum í ADHD samtökunum.

SKRÁNING HÉR

Boðið verður upp á fjarfundabúnað fyrir landsbyggðina ef þátttaka er næg.

DAGSKRÁ: 

Laugardagur 20. september 2014

Kl. 10:00–11:15      Hvað er ADHD?
Fyrirlesari: Páll Magnússon sálfræðingur
Kl. 11:15–11:30   Hlé
Kl. 11:30–12:45   ADHD og nám
Fyrirlesari: Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur
Kl. 12:45-13:30    Matarhlé
Kl. 13:30-14:45    Félagsfærni barna með ADHD, hvað geta foreldrar gert?
Fyrirlesari: Ester Ingvarsdóttir sálfræðingur

Laugardagur 27. september 2014

Kl. 10:00-11:15    Samskipti  innan fjölskyldna barna með ADHD
Fyrirlesari: Bóas Valdórsson sálfræðingur
Kl. 11:15-11:30    Hlé
Kl. 11:30-12:45    Lyfjameðferð við ADHD
Fyrirlesari: Ólafur Ó. Guðmundsson barna og unglingageðlæknir
Kl. 12:45-13:30    Matarhlé
Kl. 13:30-14:45    Líðan barna með ADHD
Fyrirlesari: Hrund Þrándardóttir sálfræðingur

Hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að foreldrar öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD.

        Einstaklingur       Báðir foreldrar / forráðamenn / aðstandendur
Félagsmenn   Kr. 11.000   Kr. 18.000
Aðrir   Kr. 19.000   Kr. 26.000

 

SKRÁNING HÉR