Námskeið í markmiðasetningu

Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar heldur frítt námskeið í markmiðasetningu í október. Katrín Björk, sálfræðingur og starfsmaður Þekkingarmiðstöðvar, mun halda námskeiðið.

Námskeiðið er í tvo klukkutíma og er hægt að velja um þrjár dagsetningar:

  • 22. október, kl. 10-12
  • 23. október, kl. 17-19
  • 28. október, kl. 13-15

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriðin í markmiðasetningu, m.a. hvernig hægt er að setja sér gott markmið og unnið markvisst að því að ná því. Litlir hópar verða á hverju námskeiði.

Námskeiðið er ókeypis.

Skráning sendist á netfangið radgjafi@thekkingarmidstod.is