Náum áttum:Einelti - Úrræði og forvarnir

Síðasti Náum áttum morgunverðarfundur vetrarins verður þann 15. apríl næstkomandi á Grand Hóteli. Yfirskrift fundarins að þessu sinni verður Einelti – úrræði og forvarnir. Á fundinum ræðir Vanda Sigurgeirsdóttir um árangursríka leið við lausn eineltismála, Páll Óskar Hjálmtýsson og Magnús Stefánsson ræða um einelti út frá sjónarhóli geranda og þolanda og Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnisstjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi fjallar um Vináttuverkefni Barnaheilla, sem er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla.

Í lok fundarins verða opnar umræður. Fundarstjóri er Sólveig Karlsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla.

Fundurinn hefst klukkan 8:15 og stendur til klukkan 10.
Þátttökugjald er 2.400 krónur og er morgunmatur innifalinn í gjaldinu.

Skráning á fundinn