Nú geta allir verið með og stutt ADHD samtökin.

Nú geta allir verið með í Team ADHD!
Nú geta allir verið með í Team ADHD!
Nú er ljóst að ekkert Reykjavíkurmaraþon verður þetta árið, en þess í stað stendur Íslandsbanki fyrir stórsniðugum og glæsilegum áheitaleik þar sem allir íslendingar geta tekið þátt - ekki bara hlauparar, heldur allir sem vilja leggja góðum málstað lið - og það kostar ekkert!
 
Það eina sem þú þarft að gera til að þess að taka þátt er að:
1. Skrá þig á www.rmi.is
2. Velja ADHD samtökin sem það góðgerðarfélag sem þú vilt heita á.
3. Láta vini og vandamenn vita um verkefnið þitt og safna áheitum.
4. Hlaupa eða ganga þá vegalengd sem þú ákveður á tímabilinu 15-25 ágúst.
 
Þeir sem vilja geta líka tekið þátt í gjafaleik sem Íslandsbanki er með þar sem glæsilegir vinningar eru í boð - dregið 22. ágúst: https://www.facebook.com/Reykjavikurmarathon/posts/10158354783766768
 
Vertu með í Team ADHD - það hefur aldrei verið auðveldara!
 

Þeir sem hlaupa eða ganga fyrir ADHD samtökin geta fengið flottann hlaupabol frá samtökunum sem þakklætisvott - gildir á meðan birgðir endast. Þegar þú hefur skráð þig í Team ADHD á hlaupastyrkur.is getur þú sent okkur póst á adhd@adhd.is og valið hvorn bolinn sem er.

Hlaupabolir

Í meira en 30 ár hafa ADHD samtökin unnið markvisst að því að einstaklingar með ADHD og skyldar raskanir og fjölskyldur þeirra, mæti skilningi í samfélaginu, fái stuðning, styrk og þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun, auknum möguleikum í námi, leik og starfi og almennt bættum lífsgæðum.

Þjónusta ADHD samtakanna er til reiðu fyrir alla landsmenn en í samtökunum eru hátt í 3000 félagsmenn. Aðildin gildir fyrir alla fjölskyldu viðkomandi, enda eru oft margir í sömu fjölskyldu með ADHD.

Líklega glíma allt að 20.000 einstaklingar við ADHD á Íslandi í dag - 8.000 börn og 12.000 fullorðnir, mjög margir sem ekki hafa fengið greiningu eða úrræði við hæfi sem gætu stórbætt lífsægði og dregið verulega úr ýmsum samfélagslegum kostnaði; brottfalli úr skólum, vímuefnanotkun, einelti, örorku, lyfjanotkun og ýmiskonar heilbrigðisvanda.

ADHD samtökin veita félagsmönnum, öllum almenningi, opinberum stofnunum og fagfólki ýmiskonar ráðgjöf, fræðsluefni og upplýsingar, öllum að kostnaðarlausu og standa jafnframt fyrir öflugu námskeiðahaldi, fræðslufundum og útgáfustarfsemi.

Með þínum stuðningi viljum við og getum við, eflt þetta starf enn frekar - öllum til heilla.

Við skorum því á velunnara félagsins, félagsmenn sem aðra, að hlaupa eða ganga fyrir ADHD samtökin og/eða heita á þá sem hlaupa fyrir samtökin og með þeim hætti, hvetja okkar vösku sveit til dáða og efla starsemi samtakanna. Hér má sjá hverjir hlaupa fyrir ADHD samtökin í ár og skrá sig til leiks - TEAM ADHD

Við hvetjum alla velunnara Team ADHD einnig til að melda sig í hlaupahóp okkar á Facebook - bæði þá sem hlaupa fyrir samtökin og þá sem vilja hvetja þá og styðja. Slóðin er hér: Hlaupahópur Team ADHD

Allir með - #teamADHD #snillingar #takkADHD