Ný íslensk barnabók; Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD.

Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD - ný íslensk barnabók frá ADHD samtökunum.
Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD - ný íslensk barnabók frá ADHD samtökunum.

Elli – Dagur í lífi drengs með ADHD er ný íslensk barnabók útgefin af ADHD samtökunum. Bókin er ríkulega myndskreytt, fjörug og byggð á raunverulegum atburðum í lífi níu ára íslensk drengs sem er með ADHD. Höfundur og teiknari er Ari H.G. Yates en bókina vann hann í samstarfi við Elías Bjarnar Baldursson, þegar Elías var 9 ára gamall. 

Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD.

Krakkar með ADHD upplifa sig oft misskilin og fá gjarnan neikvætt viðmót þegar þau eiga erfitt með að hlýða, vera kyrr eða vinna verkefni sem þeim finnst óspennandi. Megininntak bókarinnar er að gefa raunsanna innsýn í líf barna með ADHD og benda ungum jafnt sem öldnum á að það er vel hægt að líta á ADHD með jákvæðum hætti; það er hægt að „beisla“ ADHD til góðs! 

Útgáfa bókarinnar er unnin í samstarfi við kanadíska útgáfufyrirtækið David Berman Communications, en fyrirhuguð er útgáfa hennar fyrir ensku- og frönskumælandi markað á komandi misserum.

Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD er 44 blaðsíður og er nú fáanleg í vefverslun ADHD samtakanna og í öllum helstu bókaverslunum landsins. Félagsmenn ADHD samtakanna fá 25% afslátt í vefverslun samtakanna.