Nýtt endurskinsmerki frá Hugleiki Dagssyni

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD. Í tilefni af mánuðnum munu ADHD samtökin standa fyrir fjölbreyttum viðburðum og með ýmsum hætti, vekja athygli á málefnum fólks með ADHD, en gera má ráð fyrir að hátt í 20.000 Íslendingar séu með ADHD - greint eða ógreint, börn og fullorðnir.

Til að marka upphaf ADHD vitundarmánaðarins að þessu sinni, afhenti formaður ADHD samtakanna, Elín H. Hinriksdóttir, heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, fyrsta endurskinsmerki ADHD samtakanna árið 2019, en venju samhvæmt, er nýtt endurskinsmerki, teiknað af Hugleiki Dagssyni, selt í fjáröflunarskini fyrir samtökin, í októbermánuði ár hvert.

Dagana 5-20 október verður endurskinsmerkið selt víða um land, bæði í heimahúsum, á torgum og á fjölda útsölustaða Bónuss, Eymundsson, Íslandspóst, N1 og á adhd.is Endurskinsmerkið kostar kr. 1.000,- og rennur allur ágóði af sölunni til ADHD samtakanna.