Opinn spjallfundur á Akureyri - ADHD og sumarfrí

Sumarið er tíminn... eða hvað?
Sumarið er tíminn... eða hvað?

ADHD og sumarfrí. ADHD Norðurland stendur fyrir opnum spjallfundi á Akureyri, um ADHD og sumarfrí, fimmtudaginn 13. júní næstkomandi. Fundurinn fer fram í húsnæði Grófarinnar, Hafnarstræti 95 og hefst kl. 20:00.

Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna að tæmast og við tekur sól sumar og taumlaus gleði... eða hvað? Þó sumarfríin séu og eigi að vera tími fjölskyldusamveru og fjölbreyttra skemtilegra viðburða, fylgja sumrinu einnig nýjar og fjölbreyttar áskoranir, þar sem rútínan riðlast og við tekur óvissa. Hjá börnum með ADHD og fullorðnum, getur þessi tími valdið mikilli streytu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Á fundinum mun Drífa Björk Guðmundsóttir, sálfræðingur og stjórnarkona í ADHD samtökunum fer yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tíma fjölskyldunnar, benda á hagnýt ráð til lausnar og leiða umræður.

Fundurinn ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bækling samtakanna og annað fræðsluefni.

Spjallfundir ADHD Norðurland eru haldnir í Grófinni, Hafnarstræti 95., 4. hæð, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir. Hægt er að skrá sig á Facebook viðburð fundanna, þar sem fram koma fyrirhugaðir fundir á Akureyri og fundarefni, en áætlað er einn spjallfundur verði haldinn í hverjum mánuði - skráning hér. 

Enginn aðgangseyrir er að fundunum og er ávallt heitt á könnunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!