Örfá pláss eftir á Súper krakkar sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 9-12 ára stráka

Námskeiðið sem er haldið í samstarfi við Sjálfstyrk og er ætlað drengjum 9 -12 ára með ADHD. Á námskeiðinu læra strákarnir leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni og tilfinningastjórnun. Unnið er út frá aðferðum hugrænni atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga. 

Sjálfstyrkingarnámskeið Sjálfstyrks og ADHD samtakanna - Súper krakkar 9-12 ára! Ætlað börnum sem gengur ágætlega að tileinka sér efni í 10 þátttakenda hóp.

Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingur Sjálfstyrks kennir námskeiðið og er allt efni byggt á gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Viðgjöf er veitt til foreldra á meðan námskeiði stendur. Soffía hefur, ásamt kollega sínum Paola Cardenas, nýverið gefið út bækurnar Súper Vitrænn og Súper Viðstödd og eru það fyrstu barnabækurnar í seríunni um Súperstyrkina. 

Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. 

Dagskrá námskeiðsins:

Tími Vikudagur Dagsetning Tímasetning 
1. tími Miðvikudagur 7. september 14:30 - 15:45
2. tími Miðvikudagur 14. september 14:30 - 15:45
3. tími Miðvikudagur 21. september 14:30 - 15:45
4. tími Miðvikudagur 28. september 14:30 - 15:45

 

Hægt er að skrá sig á námskeiðið hér á heimasíðu samtakanna
https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/super-krakkar-strakar-9-12