Rafíþróttir fyrir stelpur með ADHD

Mynd af alþjóðlegu rafíþróttamóti
Mynd af alþjóðlegu rafíþróttamóti

Nú er að verða síðustu forvöð að skrá sig á rafíþróttanámskeið Fylkis og ADHD samtakanna fyrir stelpur sem hefst 10. Janúar. Um er að ræða kynningarnámskeið í Rafíþróttum fyrir 12-17 ára stelpur með ADHD.

Æfingatímabilið er frá 10. janúar til 2. febrúar, átta skipti alls. Æfingar fara fram tvisvar sinnum í viku og eru æfingarnar í 90 mínútur í senn. Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkendur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið. Fylkir sér fyrir öllum æfingatækjum, leikjum og aðgöngum en þátttakendum er velkomið að spila aðra leiki eða skrá sig inn á sína aðganga.

Hámark eru 10 í hverjum æfingahóp. Námskeiðin fara fram í rafíþrótta aðstöðu Fylkis, Norðlingabraut 12. Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt við því að iðkandinn spili þann leik sem hann hefur verið skráð á æfingar fyrir.

Frekari upplýsingar og skráningu er hægt að nálgast hér á heimasíðu ADHD samtakanna;

Hópur 1: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-stelpur-med-adhd-12-17-ara-hopur-1
Hópur 2: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-stelpur-med-adhd-12-17-ara-hopur-2