Síðasti videó spjallfundur vetrarins í kvöld, þriðjudag, kl.20, Háaleitisbraut 13

Vídeó - spjallfundur þriðjudaginn 27.maí kl. 20:00 í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13.

Sýnd verður myndin "Marijuana and A.D.H.D and... oh look cows!" Þar er farið yfir hver langtímaáhrif kannabis eru og hversvegna fólk með ADHD á til að leita í það frekar en önnur efni.


Lengd: 40 mín

Snorri Páll Haraldsson leiðir fundina en fyrirkomulag þeirra verður með eftirfarandi hætti:

- Kynning
- Myndbandssýning
- Kaffihlé
- Umræður um efni myndar

Fundurinn hefst klukkan 20:00

Mikilvægt er að tilkynna þátttöku HÉR eða á facebook síðu ADHD samtakanna