FULLBÓKAÐ! skráð á BIÐLISTA. Skráning stendur yfir á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur - Áfram stelpur!

Áfram stelpur hefst 19. apríl 2021

  • ADHD samtökin taka á móti skráningum á fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeiðið – Áfram stelpur! Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2,5 klukkukstundir í senn og verður það haldið 19. og 26. apríl og 3. og 10. maí 2021 (sjá nánar skipulag hér fyrir neðan).
  • Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær! 

Markmið námskeiðs:

  • Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi.
  • Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. 
  • Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.
  • Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Skipulag:

  1. tími mánudagur 19. apríl kl. 19:30 - 22:00
  2. tími mánudagur 26. apríl kl. 19:30 - 22:00
  3. tími mánudagur 03. maí kl. 19:30 - 22:00
  4. tími mánudagur 10. maí kl. 19:30 - 22:00

NÁMSKEIÐSVERÐ: