Spjallfundur fyrir foreldra í kvöld: Hegðunarvandi og neysla

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld, miðvikudaginn 14. mars 2018 kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna með ADHD. Yfirskrift fundarins er "Hegðunarvandi og neysla".

Umsjón hefur Sólveig Ásgrímsdóttir.

Allir eru velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.