Spjallfundur fyrir foreldra og forráðamenn í kvöld: ADHD og unglingar

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld, miðvikudaginn 4. október 2017 kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna með ADHD. Yfirskrift fundarins er "ADHD og unglingar" og er umsjónarmaður Sólveig Ásgrímsdóttir.

Allir eru velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.