Spjallfundur fyrir fullorðna á morgun - miðvikudag

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund annað kvöld - miðvikudaginn 11. maí.

Fundurinn er ætlaður fullorðnum með ADHD. Hann verður í fundarsal, Háaleitisibraut 13 og hefst klukkan 20:30.

Ásta Sóley Sigurðardóttir leiðir fundinn en yfirskrift hans er Félagsleg samskipti.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.