Spjallfundur í kvöld - ADHD og lyf

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld miðvikudaginn 13. apríl kl. 20:30 fyrir foreldra og forráðamenn barna og ungmenna með ADHD að Háaleitisbraut 13.

Elín Hrefna Garðarsdóttir og Vilhjálmur Hjálmarsson leiða fundinn en yfirskrift hans er ADHD og lyf.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.