Spjallfundur í kvöld - Miðvikudag 5. október

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld miðvikudaginn 5. október kl. 20:30 fyrir foreldra og forráðamenn að Háaleitisbraut 13.

Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur leiðir fundinn en yfirskrift hans er "Áhættuhegðun".

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.