Spjallfundur í kvöld - Síðasti spjallfundur fyrir sumarleyfi

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld - miðvikudaginn 18. maí en þetta er síðasti spjallfundurinn fyrir sumarleyfi.

Fundurinn í kvöld er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna og ungmenna með ADHD. Hann verður í fundarsal, Háaleitisibraut 13 og hefst klukkan 20:30.

Drífa Björk Guðmundsdóttir leiðir fundinn en yfirskrift hans er Sumarfrí.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.