Spjallfundur í kvöld - Styrkleikar og áskoranir ADHD

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld, miðvikudaginn 28. febrúar 2018 kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður fullorðnum með ADHD. Yfirskrift fundarins er "ADHD - Styrkleikar og áskoranir".

Umsjón hafa Hákon Helgi Leifsson og Elín Hoe Hinriksdóttir.

Allir eru velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.