Spjallfundur í kvöld - Unglingar og fíkn

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld, miðvikudaginn 5. apríl 2017 kl. 20:30, fyrir foreldra og forráðamenn, að Háaleitisbraut 13.

Yfirskrift fundarins er "Unglingar og fíkn" og er umsjónarmaður Sólveig Ásgrímsdóttir.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.