Styttist í Reykjavíkurmaraþon

Nú styttist óðum í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2017 en það fer fram næstkomandi laugardag, 19.ágúst 2017. Þetta verður í 34. sinn sem hlaupið er haldið. Vel á annað hundrað góðgerðarfélög taka þátt í áheitasöfnun hlaupsins. ADHD samtökin eru meðal fjölmargra félagsamtaka sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni geta hlaupið fyrir.  Nokkrir tugir hlaupara leggja ADHD samtökunum lið og vekja um leið athygli á málstaðnum. Þeir fjármunir sem Reykjavíkrumaraþon skilar, renna til fræðslustarfsemi á vegum ADHD samtakanna. Við erum afar þakklát fyrir þann hlýhug sem hlaupararnir sýna ADHD samtökunum og sömuleiðis þeim sem heita á hlauparana.

Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is

Einfalt að safna
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en ADHD samtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.


 

Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.

Hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda sms skilaboð.

Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka minnum við á áheitasöfnun því samfara. 

Vefur Reykjavíkurmaraþons