Taktu stjórnina - Fræðslunámskeið fyrir fullorðna

ADHD samtökin bjóða á ný upp á fræðslunámskeið og ráðgjöf fyrir fullorðna með ADHD. Námskeiðið nefnist "Taktu stjórnina" og stendur í 10 klukkustundir. Námskeiðið hefst mánudaginn 1. febrúar og lýkur mánudaginn 15. febrúar. Skráning er hafin á vef samtakanna en fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Sú breyting hefur verið gerð að námskeiðið er nú frá kl. 20:30-22:30.

SKRÁNING HÉR

Tekið verður á eftirfarandi þáttum:

  • Skilningur á ADHD og ólík einkenni
  • Algengir fylgikvillar
  • Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
  • Markmiðasetning
  • Félagsleg samskipti almennt
  • Vinna og nám
  • Fjármálastjórn
  • Heimilið
  • Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
  • Heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður eftirtalda daga:

  • mánudag 1. febrúar kl. 20:30-22:30
  • miðvikudag 3. febrúar kl. 20:30-22:30
  • mánudag 9. febrúar kl. 20:30-22:30
  • fimmtudag 11. febrúar kl. 20:30-22:30
  • mánudag 15. febrúar kl. 20:30-22:30

Námskeiðið verður í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala"

Verð fyrir námskeiðið er kr. 32.000,- og er skráning hafin á vef ADHD samtakanna.

 

SKRÁNING HÉR


Senda póst til ADHD samtakanna