Taktu stjórnina! Fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD

Skráning er hafin á námskeiðið Taktu stjórnina!
Skráning er hafin á námskeiðið Taktu stjórnina!

Skráning er hafin á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 22. janúar nk. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:

  • Skilningur á ADHD og ólík einkenni
  • Algengir fylgikvillar
  • Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
  • Markmiðasetning
  • Félagsleg samskipti almennt
  • Vinna og nám
  • Fjármálastjórn
  • Heimilið
  • Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
  • Heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður eftirtalda daga:

  • þriðjudag 22. janúar kl. 20:00-22:00
  • fimmtudag 24. janúar kl. 20:00-22:00
  • þriðjudag 29. janúar kl. 20:00-22:00
  • fimmtudag 31. janúar kl. 20:00-22:00
  • þriðjudag 5. febrúar kl. 20:00-22:00

Námskeiðið verður í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Verð fyrir námskeiðið er kr. 34.000,- fyrir félagsmenn ADHD samtakanna og 39.000,- fyrir aðra. Hægt er að gerast félagsmaður í ADHD samtökunum hér - ein félagsaðild gildir fyrir alla á heimilinu og er árgjaldið kr. 3.650,-

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráning er hafin hér - fyrstur kemur fyrstur fær!

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is