Team ADHD - vertu með!

Allir sem hlaupa 3 km, 5 km, 10 km, 21 km og 42 km geta hlaupið fyrir Team ADHD!
Allir sem hlaupa 3 km, 5 km, 10 km, 21 km og 42 km geta hlaupið fyrir Team ADHD!

Nú virðist loksins klárt að Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2020, fer fram 22. ágúst nk. og venju samhvæmt, munu þúsundir þátttakenda hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir félagasamtök landsins. Áheitasöfnun hlauparanna í Reykjavíkurmaraþoninu er ein mikilvægasta fjáröflun hvers árs og fyrir ADHD samtökin getur hlaupið skipt sköpum fyrir starfsemi félagsins. Í fyrra hlupu hátt í 100 einstaklingar með Team ADHD og saman söfnuðu þeir ríflega 800.000,- til starfseminnar!

Í ár vonumst við til að gera enn betur en sem fyrr munu velunnarar ADHD samtakanna hlaupa undir merkjum #teamADHD, #takkADHD og #snillingar. Við fögnum hverjum nýjum þátttakanda og bendum á að ekki þarf endilega að hlaupa svo langt til að taka þátt. Allir sem hlaupa 3 km, 5 km, 10 km, 21 km og heilt maraþon geta skráð sig leiks og safnað áheitum. Öll fjölskyldan getur verið með í Team ADHD!

Þeir sem hlaupa fyrir ADHD samtökin geta fengið flottann hlaupabol frá samtökunum sem þakklætisvott. Þegar þú hefur skráð þig í Team ADHD á hlaupastyrkur.is getur þú sent okkur póst á adhd@adhd.is og valið hvorn bolinn sem er.

Hlaupabolir

Í meira en 30 ár hafa ADHD samtökin unnið markvisst að því að einstaklingar með ADHD og skyldar raskanir og fjölskyldur þeirra, mæti skilningi í samfélaginu, fái stuðning, styrk og þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun, auknum möguleikum í námi, leik og starfi og almennt bættum lífsgæðum.

Þjónusta ADHD samtakanna er til reiðu fyrir alla landsmenn en í samtökunum eru hátt í 3000 félagsmenn. Aðildin gildir fyrir alla fjölskyldu viðkomandi, enda eru oft margir í sömu fjölskyldu með ADHD.

Líklega glíma allt að 20.000 einstaklingar við ADHD á Íslandi í dag - 8.000 börn og 12.000 fullorðnir, mjög margir sem ekki hafa fengið greiningu eða úrræði við hæfi sem gætu stórbætt lífsægði og dregið verulega úr ýmsum samfélagslegum kostnaði; brottfalli úr skólum, vímuefnanotkun, einelti, örorku, lyfjanotkun og ýmiskonar heilbrigðisvanda.

ADHD samtökin veita félagsmönnum, öllum almenningi, opinberum stofnunum og fagfólki ýmiskonar ráðgjöf, fræðsluefni og upplýsingar, öllum að kostnaðarlausu og standa jafnframt fyrir öflugu námskeiðahaldi, fræðslufundum og útgáfustarfsemi.

Með þínum stuðningi viljum við og getum við, eflt þetta starf enn frekar - öllum til heilla.

Við skorum því á velunnara félagsins, félagsmenn sem aðra, að hlaupa fyrir ADHD samtökin og/eða heita á þá sem hlaupa fyrir samtökin og með þeim hætti, hvetja okkar vösku sveit til dáða og efla starsemi samtakanna. Hér má sjá hverjir hlaupa fyrir ADHD samtökin í ár og skrá sig til leiks - TEAM ADHD

Við hvetjum alla velunnara Team ADHD einnig til að melda sig í hlaupahóp okkar á Facebook - bæði þá sem hlaupa fyrir samtökin og þá sem vilja hvetja þá og styðja. Slóðin er hér: Hlaupahópur Team ADHD

Allir með - #teamADHD #snillingar #takkADHD