Tilkynning Þröstur Emilsson hefur verið leystur frá störfum

Stjórn ADHD samtakanna hefur ákveðið að leysa framkvæmdastjóra þeirra, Þröst Emilsson, frá störfum. Ellen Calmon, sem situr í stjórn samtakanna, hefur fallist á að taka við verkefnum hans þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra. Um ástæður þessara breytinga, sem því miður eru óhjákvæmilegar að mati stjórnar, verður gerð grein síðar.
 
Reykjavík ,19. júní 2018
F.h. stjórnar ADHD samtakanna,
Elín Hoe Hinriksdóttir