Tölvuleikjagerð og Minecraft - sumarnámskeið

Nú fer senn að líða að sumarnámskeiðunum ADHD samtakanna og í ár bjóðum við upp á námskeið í samstarfi við Skemu. Námskeiðið er tvískipt, annars vegar verður tölvuleikjagerð í Scratch og hins vegar sköpun í Minecraft. Scratch er forritunarumhverfinu þar sem þátttakendur og læra að skapa, forrita og hanna sína eigin tölvuleiki. Scratch er sérsniðið að byrjendum í forritun en þar er notast við sjónrænt forritunarmál sem byggir á litríkum skipanakubbum. Þátttakendur öðlast grunnþekkingu á forritun, stafrænni hönnun og framkvæmd eigin hugmynda. Minecraft er vinsæll tölvuleikur þar sem eina takmarkið er eigið hugmyndaflug. Þátttakendur fá að læra grunninn í leiknum, ýmis brögð og brellur og vinna saman við að byggja upp samfélag með öðrum. Þátttakendur spila í sama heimi og geta unnið saman við verkefnavinnu.

Rétt er að taka fram að allir þjálfarar Skemu fara í gegnum ADHD fræðslu hjá samtökunum í þeim tilgangi að mæta betur þörfum þátttakenda.

Námskeiðið verður haldið í HR í aðstöðu Skemu. Kennt verður vikuna 10., 11., 12., og 13. júní 2024. frá kl.10:00-12:30.

Áhersla verður lögð á að læra nýja hluti, hreyfingu, sköpun, teymisvinnu og fjör!

Frekari upplýsingar og skráning fer fram hér.