Tvær nýjar bækur í sölu hjá ADHD

ADHD samtökin hafa tekið tvær nýjar bækur til sölu á vef sínum. Annars vegar bók sem heitir "Að læra heima án þess að gubba" eftir Trevor Romain og hins vegar bókina "Taktu argið úr reiðinni" sem þær  Elisabeth Verdick og Marjorie Lisovskis skrifuðu. Bækurnar eru til sölu á vef ADHD og á skrifstofunni, Háaleitisbraut 13, Reykjavík. Á annan tug bókatitla er til sölu á skrifstofu ADHD og þá er rétt að minna á myndarlegt bókasafn samtakanna sem er opið alla virka daga frá kl. 13 til 16.

Sjá bóksölulista HÉR