Úlfatíminn - opinn spjallfundur á Egilsstöðum

Hvaða foreldri kannast ekki við erfiðleikana og pirringinn sem skapast hjá börnum eftir að leikskóla lýkur og fram að háttatíma? Þetta er svokallaður úlfatími. Skapsveiflur, pirringur, hegðunarerfiðleikar og þessháttar eru ekki óalgengir hjá börnum á þessum tímapunkti og sérstaklega börnum með ADHD. Að versla í matinn, elda, borða, baða, bursta tennur, koma barninu í rúmið og svæfa er eilíf barátta. Þetta reynir á þolinmæðina og getur verið gríðarlega krefjandi tími. Hvernig er hægt að draga úr þessum árekstrum? 

Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkur góð ráð og aðferðir sem hægt er að nota til að létta heimilislífið og skapa jákvæðar samverustundir.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á Hótel Héraði, Egilsstöðum þann 15. febrúar næstkomandi og hefst klukkan 20:00. Heitt á könnunni.

Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu um hann: https://fb.me/e/3izwX1VIv

Verið velkomin á fræðslufundinn!