Umfjöllun um ADHD samtökin á N4

Umfjöllun um ADHD samtökin er meðal efnis í nýjum þætti sjónvarpsstöðvarinnar N4, "Borgarinn", sem fer í loftið klukkan 18:30 í kvöld.

Umsjónarmaður þáttanna er Friðrik Ómar Hjörleifsson og um myndatöku sér Friðþjófur Helgason. Friðrik Ómar mun í þáttunum fjalla um áhugaverðar hliðar mannlífs í höfuðborginni. Í þessum fyrsta þætti heimsækir Friðrik Ómar ADHD samtökin og spjallar við Ellen Calmon, framkvæmdastjóra samtakanna. Þátturinn hefst klukkan 18:30 í kvöld, miðvikudag 9. október.