Ungmenni með ADHD á Ungmennaþing ÖBÍ

Ungmennaþing ÖBÍ Hvað finnst þér?
Ungmennaþing ÖBÍ Hvað finnst þér?

Ungmennaþing ÖBÍ - Hvað finnst þér?  

verður haldið 9. mars 2019, kl.13-16 að Grand Hóteli, Sigtúni 38, Reykjavík. 

Ungt fólk með fatlanir, raskanir eða langvinna sjúkdóma, systkini þeirra  og ungmenni sem eiga fatlaða/langveika foreldra geta tekið þátt, og mikilvægt er að fulltrúar ADHD samtakanna séu þar á meðal. 

Þekkir þú einhvern á aldrinum 12-18 ára, sem er með ADHD eða á systkyni eða foreldra með ADHD? Ef viðkomandi hefur skoðanir og vill breyta einhverju í skólakerfinu, tómstundastarfi, íþróttum, aðgengismálum, samfélaginu eða öðru tengt ADHD, þá er enn hægt að skrá sig til leiks. 

Skráning er hér eða hjá thordis@obi.is og þarf hún að berast fyrir 20. febrúar.  Upplýsingar veitir Þórdís Viborg starfsmaður málefnahóps ÖBÍ um málefni barna í síma 530 6700. Aðgangur er ókeypis og táknmálstúlkun er að sjálfsögðu í boði.