Taktu stjórnina I - Fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD október 2023

OKTÓBER NÁMSKEIР2023 - TAKTU STJÓRNINA er námskeið fyrir fullorðna einstaklinga með ADHD

Skráning er hafin á hið sívinsæla færninámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! sem verður haldið 4., 11., 18. og 25. október 2023, sjá nánar töflu hér fyrir neðan.

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 17:00-19:30 alla dagana. 

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:

Skilningur á ADHD og ólík einkenni
Algengir fylgikvillar
Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
Markmiðasetning
Félagsleg samskipti almennt
Vinna og nám
Fjármálastjórn
Heimilið
Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
Heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins:
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.

Október NÁMSKEIР

Tími Dagsetning Tímasetning
1. tími miðvikudagur 4. október 17:00 - 19:30
2. tími miðvikudagur 11. október 17:00 - 19:30
3. tími miðvikudagur 18. október 17:00 - 19:30
4. tími miðvikudagur 25. október 17:00 - 19:30

 

Námskeiðsverð

39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
44.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is
Verið velkomin á námskeið hjá ADHD samtökunum!