
Fjarnámskeið 18. og 25. nóvember 2023.
Er tímabært að horfa fram á veginn?
Ertu eldri en 18 ára, kannski nýbúin að fá ADHD greiningu eða fyrir einhverju síðan... jafnvel sem barn?!
Þá er netnámskeiðið „Áfram Veginn” mögulega námskeið fyrir þig!
Á netnámskeiðinu ætlum við að fræðast um ADHD með styrkleika að leiðarljósi.
Vissir þú að með auknum skilningi á þínu ADHD eykur þú líkurnar á betri stjórn og auknum lífsgæðum í daglegu lífi?
Áskoranir ADHD geta haft margvísleg áhrif í daglegu lífi. Á námskeiðinu skoðum við hvar þær liggja og aðferðir til að takast á við þær og ná betri tökum á þeim.
Leiðbeinendur námskeiðsins eru Sigrún Jónsdóttir þroskaþjálfi og ADHD/einhverfu markþjálfi og ásamt Kristbjörg Kona ADHD markþjálfi.
Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM tvo laugardaga í röð, 18. og 25. nóvember - sjá hér að neðan.
Megin þemu námskeiðsins eru:
- Taugaþroskaröskunin ADHD
- Stýrifærni heilans
- Greiningarferli ADHD
- Mikilvægi greiningar og sáttar við greiningu
- Þróun sjálfsmyndarinnar og fylgiraskanir ADHD
- Hugræna líkanið
- Styrkleikar ADHD
- Bjargráð verða kynnt til sögunnar
- Kynning á meðferðarúrræðum fyrir ADHD
Leiðbeinendur vefnámskeiðsins eru : Sigrún Jónsdóttir þroskaþjálfi og ADHD-og einhverfu markþjálfi
Dagskrá mars námskeiðsins hér að neðan:
Tími |
Vikudagur |
Dagsetning |
Tímasetning |
1. tími |
Laugardagur |
18. nóvember |
11:00 - 13:00 |
2. tími |
Laugardagur |
25. nóvember |
11:00 - 13:00 |
NÁMSKEIÐSVERÐ:
29.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: Skráning hér
34.000 kr. fyrir aðra: Skráning hér
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is