Til baka
Hjálp fyrir kvíðin börn
Hjálp fyrir kvíðin börn

Hjálp fyrir kvíðin börn

Vörunr. 1026
Verðmeð VSK
4.900 kr.

Lýsing

Býr barnið þitt við ótta og kvíða sem hefur áhrif á hegðun þess eða heldur vöku fyrir því á nóttunni?

Kvíðaraskanir eru algengasti tilfinninga- eða hegðunarvandi sem greinist hjá börnum og talið er að um fimmtán prósent barna eigi í erfiðleikum vegna kvíða. Ef ekkert er að gert getur þessi vandi valdið alvarlegri vandamálum, svo sem skólaforðun og vinaleysi auk kvíða og depurðar til lengri tíma.

Þessi gagnlega handbók er skrifuð af leiðandi sérfræðingum á sviði kvíðaraskana barna. Bókin mun hjálpa foreldrum og öðrum sem sinna börnum að skilja hvað veldur kvíða barnsins og að fylgja hagnýtum skref-fyrir-skref leiðbeiningum til að hjálpa barninu að sigrast á kvíðanum.