Foreldranámskeið 6-18 ára

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur  barna með ADHD að 12 ára aldri verður haldið dagana 15. og 22. október 2022  í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð.

Námskeið er haldið tvo laugardaga í röð, frá kl. 10:00-15:00.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna og unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna og unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Skipulag og dagskrá: 

 

Laugardagur 15.október 2022

 

10:00 – 11:15        Hvað er ADHD?

                            Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur

11:15-11:30            Hlé

11:30 – 12:45        ADHD og nám

                             Haukur Ö. Pálmasson sálfræðingur

12:45 – 13:30        Matarhlé

13:30 – 14:45        Félagsfærni barna með ADHD, hvað geta foreldrar gert?

                              Þórdís Bragadóttir sálfræðingur

14:45 – 15:00        Umræður


Laugardagur 22.október 2022  

10:00 – 11:15          Lyfjameðferð við ADHD

                              Ólafur Guðmundsson, barnageðlæknir

11:15 – 12:30          Kvíði og líðan barna með ADHD

                              Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur

12:30 – 13:00          Matarhlé

13:00 – 14:15          Samskipti innan fjölskyldna barna með ADHD

                               Bóas Valdórsson sálfræðingur

14:15 – 14:45          Umræður