Aðalfund ADHD samtakanna 2023

Aðalfundur ADHD samtakanna fta
Aðalfundur ADHD samtakanna fta

Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna fta. , miðvikudaginn 19. apríl kl. 20:00. Aðalfundurinn fer fram í hátíðarsal ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig á Facebook viðburð aðalfundarins svo áætla megi mætingu - skráning hér.

Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna

  1. Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári.
  2. Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
  3. Lagabreytingar. - Ein tillaga um lagabreytingu hefur borist og varðar hún formlega innleiðingu á nýju merki félagsins í lög samtakanna.
  4. Kosning stjórnar - kosið verður í embætti formanns, varaformanns, eins stjórnarmanns og eins varamanns í stjórn til ársins 2025, samhvæmt lögum félagsins - sjá núverandi stjórn og kjörtímabil stjórnarfólks.
  5. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna til eins árs í senn.
  6. Ákvörðun félagsgjalda.
  7. Önnur mál.

Möguleg framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur má senda til skrifstofu samtakanna í netfang adhd@adhd.is

Allir fullgildir félagsmenn ADHD samtakanna á aðalfundardegi geta mætt og tekið þátt í aðalfundarstörfum. Hægt er að ganga í samtökin hér.