Aðalfundur ADHD

Aðalfundur ADHD samtakanna árið 2015 verður haldinn í húsnæði samtakanna, Háaleitisbraut 13, mánudaginn 23. mars 2015 klukkan 20:00. Meðal venjulegra aðalfundarstarfa er kosning stjórnar samtakanna fram að aðalfundi 2016. Stjórn samtakanna er skipuð sjö mönnum og tveimur til vara. Formann, varaformann, gjaldkera og ritara skal kjósa sérstaklega og auglýsa samtökin eftir framboðum til setu í stjórn.

Í sjöttu greina laga ADHD samtakanna segir að aðalfund skuli halda í mars mánuði ár hvert. Til hans skal boðað með sérstöku fundarboði sem sent er félagsmönnum með að minnsta kosti viku fyrirvara og er hann þá lögmætur. Sömuleiðis skal tilkynnt um hann í fjölmiðlum.

Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:

  • Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári 
  • Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið
  • Lagabreytingar
  • Kosning stjórnar
  • Kosning tveggja félagslegra endurskoðenda til eins árs í senn
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Önnur mál.

Þá segir að lögum samtakanna verði aðeins breytt á aðalfundi þeirra. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum. Lagabreyting telst samþykkt ef ¾ hlutar fundarmanna á löglega boðuðum aðalfundi greiða henni atkvæði.

Samtökin auglýsa því eftir framboðum til setu í stjórn. Hægt er að skila inn framboðum á skrifstofu samtakanna, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík. Einnig er hægt að senda framboðsyfirlýsingu á rafrænu formi á netfangið the@adhd.is

Aðalfundarboð verður sent félagsmönnum og auglýst í fjölmiðlum a.m.k. viku fyrir boðaðan aðalfund, líkt og lög félagsins kveða á um.