Aðalfundur ADHD samtakanna 2026

Aðalfundur ADHD samtakanna fór fram 28. apríl 2026.
Aðalfundur ADHD samtakanna fór fram 28. apríl 2026.

Aðalfundur ADHD samtakanna fór fram þriðjudaginn 28. apríl 2026 í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42. Á fundinum var kjörið í stjórn samkvæmt lögum samtakanna, ársreikningar vegna 2025 afgreiddir, ályktun samþykkt um aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum fólks með ADHD ofl.

Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson gerði grein fyrir skýrslu stjórnar fyrir árið 2025, Hrannar Björn Arnarsson gerði grein fyrir ársreiknings félagsins sem samþykktir voru einum rómi.

Ársskýrslu og ársreikninga vegna ársins 2025 má nálgast á hér - ársskýrslur og reikningar ADHD samtakanna.

Starfsemi ársins einkenndist af miklu aðhaldi í rekstri, eftir talsverða útþennslu og vöxt á liðnum árum. Starfsfólki fækkaði og kostnaði við fræðslu og viðburðarhald var haldið í lágmarki. Árið var engu að síður nýtt vel til að sinna brýnum hagsmunamálum, upplýsingagjöf, fræðslustarfi og námskeiðahaldi um allt land.

Félagsmönnum fjölgaði úr 4776 í 5004 eða um 5%. Ein skráning gildir fyrir hverja fjölskyldu en bak við þá tölu reynast yfirleitt mun fleiri þar sem ekki er óalgengt að aðrir fjölskyldumeðlimir glími einnig við röskunina.

Á árinu var starfsemi í öllum sjö útibúum samtakanna og mikil áhersla var lögð á samtal við stjórnvöld um stefnumörkun í málefnum fólks með ADHD, ekki síst í baráttu fyrir bættri og aukinni þjónustu við greiningar og meðferð vegna ADHD.

Samþykkt var að árgjald ADHD samtakanna fyrir næsta starfsár yrði óbreytt, kr. 3950,-. Árgjaldið mun áfram veita umtalsverðan afslátt af námskeiðum samtakanna, af vörum í vefverslun.

Í samræmi við lög samtakanna var kjörið í helming stjórnarsæta, sæti gjaldkera, ritara, tveggja meðstjórnenda og eins varamanns til ársins 2028, en stjórn ADHD samtakanna skipa sjö aðalmenn og tveir til vara.

Aðalfundur ADHD samtakanna samþykkti einróma ályktun um alvarlegar stöðu í málefnum fólks með ADHD á Íslandi þar sem stjórnvöld eru krafin um tafarlausar aðgerðir. Ályktun aðalfundar er hægt að nálgast hér: Er stjórnarskipið strand? Ályktun aðalfundar ADHD samtakanna.

Stjórnin er nú þannig skipuð:
Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður (kosin til aðalfundar 2027)
Bóas Valdórsson, varaformaður (kosinn til aðalfundar 2027)
Elín Hrefna Garðarsdóttir, gjaldkeri (kosin til aðalfundar 2028)
Tryggvi Axelsson, ritari (kosin til aðalfundar 2028)
Sigrún Jónsdóttir, meðstjórnandi (kosin til aðalfundar 2028)
Gyða Haraldsdóttir, meðstjórnandi (kosin til aðalfundar 2027)
Jóhanna Jónsdóttir, meðstjórnandi (kosin til aðalfundar 2028)

Varamenn:
Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, (kosin til aðalfundar 2027)
Ragna Erlendsdóttir, (kosin til aðalfundar 2028)

Nefang stjórnar er: stjorn@adhd.is