ADHD og ég - sjálfsstyrkingarnámskeið 10-12 ára strákar

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á ADHD og ég fyrir stráka á aldrinum 10.-12. sem fer fram helgina 25.-26. febrúar 

Hvernig birtist ADHD hjá mér og hvernig get ég byggt á styrkleikum mínum til að öðlast aukna færni eða læra nýja?

Á námskeiðinu er farið yfir birtingarmyndir ADHD og þátttakendur læra leiðir til að kortleggja hvernig þær birtast hjá þeim. Með auknum skilningi eykst getan til að finna hvaða styrkleikar þeir hafa og hvaða þætti þarf að styrkja, t.d. félagsfærni, tilfinningastjórnun og jákvæðari sjálfsmynd.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur;

  • öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur t.d. með aukinni hreyfingu, rútínu, slökun og matarræði
  • efli færni í samskiptum og geti tileinkað sér að stoppa og hugsa áður en þeir bregðist við
  • fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri liðan
  • skilji að allir geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af
  • þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun

Námskeiðið er helgarnámskeið og er samtals 5 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld.

Eftir námskeiðið fá aðstandendur upplýsingar og leiðbeiningar um efnið sem farið er yfir á námskeiðinu og tillögur að áframhaldandi vinnu með sínu barni. Umsjónarmenn námskeiðs eru Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og Paula Newman, BA sálfræði og MPH Lýðheilsufræði.

Námskeiðið fer fram:

Dagsetning Vikudagur Tímasetning
25. febrúar Laugardagur Kl. 10.00 - 12:30
26.  febrúar   sunnudagur Kl. 10.00 - 12:30

 

Öll að sjálfsögðu velkomin, tekið verður tillit til allra eftir óskum.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Félagsfólk  Kr. 39.000
Aðrir  Kr. 44.000

 

SKRÁNING HÉR