ADHD samtökin á Akureyri 12. júní

ADHD samtökin verða á Akureyri nk. þriðjudag sem er 12. júní 2012

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Spjallfundur fyrir foreldra

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Kynningafundur ADHD samtakanna verður haldinn á Akureyri þriðjudaginn 12. júní kl. 14 í sal Lundarskóla  í samvinnu við velferðarráðuneytið. Fundurinn er  ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD.

 Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin?

Björk Þórarinsdóttir formaður og Elín Hoe Hinriksdóttir varaformaður stjórnar ADHD  samtakanna kynna samtökin.

Dagskrá:

1. Hvað er ADHD?

Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar

2. ADHD á mismunandi aldursskeiðum.

Börn, unglingar, fullorðnir.

3. Greining og meðferðarleiðir.

4. Skóli, nám og teymisvinna.

5. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð.

6. Framtíðarhorfur.

7. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?

8. Helstu verkefni samtakanna.

Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla.

9. Fyrirspurnir.

Spjallfundur fyrir foreldra

Klukkan 20:00 á þriðjudagskvöldinu 12. júní í Stássi, fundarsal Greifans við Glerárgötu verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.

Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert

 

Nánari upplýsingar hjá Ellen Calmon framkvæmdastjóra ADHD samtakanna í síma 6947864