Aðstandendanámskeið - unglingar 13-18 ára með ADHD

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára unglinga með ADHD verður haldið laugardagana 7. og 14. október í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað ADHD er og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Hægt verður að taka þátt í námskeiðinu í gegnum Facebook hvar sem er á landinu en einnig verður námskeiðið haldið að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

Hægt er að lesa meira og skoða dagskrá námskeiðsins hér


NÁMSKEIÐSVERÐ:

Verð fyrir einstakling 34.000 kr. SKRÁNING HÉR
Verð fyrir einstakling sem er félagsmaður ADHD 29.000 kr. SKRÁNING HÉR

Verð fyrir tvo einstaklinga 44.000 kr. SKRÁNING HÉR
Verð fyrir tvo einstaklinga þar sem annar aðili er félagsmaður ADHD 39.000 kr. SKRÁNING HÉR

 

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is