Áfram stelpur! Fræðslunámskeið fyrir konur með ADHD

Áfram stelpur! Fræðslunámskeið fyrir konur með ADHD hefst 19. janúar.
Áfram stelpur! Fræðslunámskeið fyrir konur með ADHD hefst 19. janúar.

Skráning er hafin á nýtt fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna – Áfram stelpur! Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn og verður það haldið 19., 21., 26. og 28. janúar 2021 (sjá nánar skipulag hér fyrir neðan). Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd.  Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Skipulag:

  1. tími þriðjudagur 19. janúar kl. 19:30 - 22:00
  2. tími fimmtudagur 21. janúar kl. 19:30 - 22:00
  3. tími þriðjudagur 26. janúar kl. 19:30 - 22:00
  4. tími miðvikudagur 28. janúar kl. 19:30 - 22:00

NÁMSKEIÐSVERÐ:

34.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna:SKRÁNING HÉR
39.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is