Áfram stelpur - námskeið fyrir konur með ADHD hefst 1. mars.

Áfram stelpur - námskeið fyrir konur með ADHD.
Áfram stelpur - námskeið fyrir konur með ADHD.

Áfram stelpur - námskeið fyrir konur með ADHD hefst 1. mars nk

Nokkur sæti laus - afsláttur fyrir skuldlausa félagsmenn ADHD samtakanna.

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2,5 klukkukstundir í senn. Tvö námskeið hafa þegar verið ákveðin, annarsvegar 1. - 22. mars 2022 og hinsvegar 4. - 25 maí 2022. Um er að ræða tvö aðskilin námskeið, sjá nánar hér að neðan.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær! 

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd.  Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Skipulag vornámskeiða 2022:

MARS NÁMSKEIÐ

1. tími þriðjudagurinn   1. mars          17:00 - 19:30

2. tími þriðjudagurinn  8. mars         17:00 - 19:30

3. tími þriðjudagurinn  15. mars        17:00 - 19:30

4. tími þriðjudagurinn  22. mars       17:00 - 19:30

MAÍ NÁMSKEIÐ

1.  tími miðvikudagur  4. maí             09:00 - 11:30

2. tími miðvikudagur  11. maí             09:00 - 11:30

3. tími miðvikudagur  18. maí             09:00 - 11:30

4. tími miðvikudagur  25. maí            09:00 - 11:30

 

 NÁMSKEIÐSVERÐ:

39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna:SKRÁNING HÉR
44.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is