Áfram veginn - fjarnámskeið í Mars

Ertu eldri en 18 ára, kannski nýbúin að fá ADHD greiningu?
Þá er netnámskeiðið „Áfram Veginn” mögulega námskeið fyrir þig! Á netnámskeiðinu ætlum við að fræðast um ADHD með styrkleika að leiðarljósi. Vissir þú að með auknum skilningi á þínu ADHD eykur þú líkurnar á betri stjórn og auknum lífsgæðum í daglegu lífi? Áskoranir ADHD geta haft margvísleg áhrif í daglegu lífi. Á námskeiðinu skoðum við hvar þær liggja og aðferðir til að takast á við þær og ná betri tökum á þeim. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM tvo laugardaga í röð, 11. og 18. mars - sjá hér að neðan.  

Megin þemu námskeiðsins eru:

  • Taugaþroskaröskunin ADHD
  • Stýrifærni heilans
  • Greiningarferli ADHD
  • Mikilvægi greiningar og sáttar við greiningu
  • Þróun sjálfsmyndarinnar og fylgiraskanir ADHD
  • Hugræna líkanið
  • Styrkleikar ADHD
  • Bjargráð verða kynnt til sögunnar
  • Kynning á meðferðarúrræðum fyrir ADHD

Leiðbeinendur vefnámskeiðsins eru : Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir þroskaþjálfi og ADHD-og einhverfu markþjálfi

Dagskrá nóvember námskeiðsins hér að neðan:

Tími Vikudagur Dagsetning Tímasetning 
1. tími Laugardagur 11. mars 11:00 - 13:00
2. tími Laugardagur 18. mars 11:00 - 13:00

 

Námskeiðsverð:

29.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR

34.000 kr. fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is