Börn og unglingar með ADHD og lyf

Börn og unglingar með ADHD og lyf
Börn og unglingar með ADHD og lyf

ADHD og lyf! ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um ADHD og lyf, miðvikudaginn 6. mars nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður forráðamönnum barna og unglinga með ADHD og áhugafólki um ADHD og lyf.

Umsjón með fundinum hafa Elín Hrefna Garðarsdóttir, geðlæknir og Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD samtakanna.

Mikil umræða hefur verið um notkun lyfja og ADHD á liðnum misserum og víða má greina fordóma og vanþekkingu um þessi mál. Á fundinum verður farið yfir virkni helstu lyfja sem notuð eru vegna ADHD, rætt um mögulegar aukaverkanir og reynt að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargesta.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bækling samtakanna og annað fræðsluefni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrá vorannar 2019 hér: Spjallfundir ADHD samtakanna vorið 2019.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.