Ég get! Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni með ADHD - nokkur sæti laus!

Nokkur sæti laus vegna forfalla.
Nokkur sæti laus vegna forfalla.

SKRÁNING HÉR - nokkur sæti laus vegna forfalla - skráning opin!

Ég get! er skemmtilegt og fræðandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 14-16 ára unglinga með ADHD (8.-10. Bekkur). Námskeiðið samanstendur af fræðslu, umræðum og léttum verkefnum og hvatt er til virkrar þátttöku unglinganna. Hægt er að greiða fyrir námskeiðið með frístundastyrkjum sveitarfélaga.

Almenn fræðsla um ADHD er mikilvægur þáttur í að unglingarnir öðlist skilning á sjálfum sér og þeim áskorunum sem verða á vegi þeirra í daglegu lífi og sætti sig við greininguna.

Meiri áhersla er þó lögð á að efla sjálfsmynd unglinganna með því að draga fram þá styrkleika sem þeir búa yfir og benda þeim á leiðir til að nýta styrkleikana sína til að vinna með erfiðleikana.

Meðal þess sem fjallað er um er:

  • Almenn fræðsla um ADHD með öllum þess kostum og göllum
  • Fylgiraskanir ADHD
  • Sjálfsmyndin
  • Mikilvægi greiningarinnar og sátt
  • Tímastjórnun, skipulagning og markmiðasetning
  • Tilfinningastjórnun og félagsfærni
  • Áhættuhegðun og kynvitund
  • Lífsstíll og sýndarveruleikinn
  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið er 20 klukkustundir og tekur 10 vikur. Fyrsti og síðasti tíminn eru 1 klst, tímar tvö og níu eru 3 klst. Og tímar þrjú til átta eru 2 klst. hver (sjá töflu hér að neðan).

 

Foreldrakynning Mánudagur 30. september kl. 20:30 - 21:30

  1. tími Laugardagur 10. október kl. 12:00 - 15:00
  2. tími Miðvikudagur 14. október kl. 17:00 - 19:00
  3. tími Miðvikudagur 21. október kl. 17:00 - 19:00
  4. tími Miðvikudagur 28. október kl. 17:00 - 19:00
  5. tími Miðvikudagur 4. nóvember kl. 17:00 - 19:00
  6. tími Miðvikudagur 11. nóvember kl. 17:00 - 19:00
  7. tími Miðvikudagur 18. nóvember kl. 17:00 - 19.00
  8. tími Laugardagur 28. nóvember kl. 12:00 - 15:00

Foreldrafundur Miðvikudagur 2. desember kl. 20:30 - 21:30

Tveir umsjónarmenn stjórna námskeiðinu, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, þroskaþjálfi og ADHD markþjálfi, auk gestafyrirlesara.
Námskeiðið er haldið í sal ADHD að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík. Námskeiðsgjald er kr. 34.500,- en kr. 29.500,- fyrir félagsmenn ADHD samtakanna (ef einhver á heimilinu er í samtökunum). Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér.

Námskeiðið er hægt að greiða að hluta eða í heild, með frístundastyrkjum eða sambærilegum styrkjum, ef þátttakendur búa í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ eða Mosfellsbæ.

SKRÁNING HÉR - Aðeins 12 pláss - skráning opin!

Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu í síma 581 1110 eða á netfangið adhd@adhd.is