Ekki missa af málþingi ADHD samtakanna! - Þegar ADHD fylgir þér

Þegar ADHD fylgir þér

Málþing ADHD samtakanna verður haldið þann 30. október næstkomandi kl. 10-14. Einstaklingar með ADHD mæta iðulega ýmsum áskorunum í daglegu lífi og getur röskunin ein og sér haft margskonar áhrif á tilveruna. Málþingið beinist að þessu sinni að fullorðnum einstaklingum með ADHD og farið verður yfir nokkra þætti sem mörgum finnst erfitt að takast á við. Fjölbreyttir fræðandi fyrirlestrar í boði og er hver og einn fyrirlesari sérfræðingur á sínu sviði.

Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til að fræðast og um leið læra nýjar aðferðir til að takast á við áskoranir.

Dagskrá

10:00 – 10:15

Setning málþings

 

Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna

10:15 – 10:30

Ávarp

10:30 – 10:50

Afhending Hvatningarverðlauna

10:50 – 11:30 Hvert fóru peningarnir? - Frá hvatvísi og frestun til betri líðan
 

Valdis Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi

11:30 – 12:10 Þegar álagið verður of mikið - ADHD og langvarandi streita
 

Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarna hjá VIRK

12:10 – 12:30

Hádegishlé

12:30 – 13:10 ADHD og náin sambönd
 

Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi

13:10 – 13:50

Að takast á við uppeldishlutverkið

13:50 – 14:00 Málþingsslit

 

Fundarstýra: Birna Rún Eiríksdóttir leikkona og uppistandari

 

Skráning hér